Ert þú að glíma við streitu, þreytu og orkuleysi?

JÁ! OG ÉG VIL VITA MEIRA!

vertu velkomin

Ég heiti Ingunn og frá því ég man eftir mér hef ég verið áhugasöm um fólk, hvernig það hugsar, hegðar sér og ekki síst hvernig það bætir líf sitt. Ég hef líka ávallt notið þess að hreyfa mig og haft mikinn áhuga á heilsueflingu og næringu. Þrátt fyrir þennan áhuga minn tókst mér að keyra sjálfa mig í kafi fyrir nærri áratug. Lífsbjörg mín kom í formi jóga og hugleiðslu sem umbreyttu lífi mínu og fjölskyldu minnar. Stöðug forvitni um hollustu, meðvitund og innskoðun hafa svo kennt mér að þekkja hvaða fæða og hreyfing hentar mínum líkama.

Ástríða mín í dag felst í því að gefa áfram allt það sem ég hef lært og styðja aðra í að efla heilsuna sína og lifa sínu besta lífi.

Ég trúi því að

  • Góð heilsa

    snúist um miklu meira en aðeins líkamlega starfsemi.

  • Til að efla

    heilsuna þurfi einnig að huga að andlegum og félagslegum þáttum.

  • við getum öll

    átt friðsælt og hamingjuríkt líf í hraustum líkama.

  • hraustur líkami

    sé á allra færi þar sem við njótum og gerum það sem gleður okkur.

Ég sérhæfi mig í að aðstoða konur við það að finna sína eigin leið að bættri heilsu

f

Ef þú ert tilbúin að komast að því hvernig þú getur bætt heilsu þína og lifað þínu besta lífi sendu mér línu!

hafðu samband

Finnum þína lausn saman

    af hverju hafa samband?

    Menntun

    Ég er með BA gráðu í sálfræði, MA gráðu í mannauðstjórnun og með post grad diploma í tilfinningagreind.

    menntun

    Ég er 560 RYT jógakennari, heilsumarkþjálfi og með 25 ára reynslu af ýmiskonar líkamsræktarþjálfun.

    reynsla

    Ég hef starfað við rannsóknir, eigin rekstur sem heilsuþjálfari og sem fjármálastjóri í alþjóðlegu fyrirtæki.

    núna

    Starfa ég sem heilsuþjálfari og einbeiti orku minni að því að styðja aðrar konur í að finna sína leið að bjartari og heilsuríkari framtíð.